Fotbolti.net
23.10.07 - 15:25
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Collins John til Leicester á láni (Staðfest)

Collins John.

Collins John.

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur fengið til sín sóknarmanninn Collins John á láni frá Fulham í þrjá mánuði.
John, sem er fyrstu kaup Gary Megson síðan hann tók við liðinu í september, var talinn vera mjög eftirsóttur af liðum í Championshipdeildinni.

Þessi 22 ára gamli leikmaður getur spilað sinn fyrsta leik fyrir nýtt félag þegar Leicester mætir Sheffield United á Walkers Stadium i kvöld.

John hefur gengið illa að festa sig í sessi hjá nýja stjóranum Lawrie Sanchez, sem tekur David Healy og Diomansy Kamara fram yfir hann.

Þessi hollenski sóknarmaður hefur spilað 108 leiki fyrir Fulham síðan hann kom frá FC Twente árið 2004 og hefur á þeim tíma skorað 23 mörk.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.