Fotbolti.net
23.10.09 - 12:19
Magnús Már Einarsson

Daði Lárusson í Hauka (Staðfest)

Daði skrifar undir samninginn nú í hádeginu.

Daði skrifar undir samninginn nú í hádeginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Daði Lárusson skrifaði í hádeginu í dag undir tveggja ára samning við Hauka. Hann mun leika með Haukum í Pepsi-deildinni næsta sumar auk þess sem hann verður markmannsþjálfari hjá yngri flokkum félagsins.
Daði kemur til Hauka frá nágrönnunum í FH en ljóst var fyrr í haust að hann færi frá Íslandsmeisturunum eftir að Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður gekk í raðir félagsins.

Daði er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka síðan tímabilinu lauk.

Áður höfðu Guðmundur Viðar Mete og Arnar Gunnlaugsson komið frá Val og Kristján Ómar Björnsson úr Þrótti.

Daði sem er 36 ára gamall hefur allan sinn feril leikið með FH að fráskildu árinu 1995 er hann var á láni hjá Skallagrími. Hann á að baki 3 leiki með A-landsliði Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.