Fotbolti.net
23.10.09 - 19:16
Hafliði Breiðfjörð

Árni Freyr Guðnason áfram í ÍR (Staðfest)

Árni Freyr við undirskriftina í kvöld.

Árni Freyr við undirskriftina í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR-ingar fengu gríðarlega góð tíðindin í kvöld þegar Árni Freyr Guðnason skrifaði undir nýjan samning við félagið og því ljóst að hann leikur með ÍR í 1. deildinni á næstu leiktíð.
Árni Freyr hefur verið mjög eftirsóttur eftir að tímabilinu lauk og nokkur lið í efstu deild hafa sýnt honum áhuga. Því kom á óvart að hann skyldi ákveða að vera áfram í ÍR.

Hann er 23 ára gamall miðjumaður sem hóf feril sinn hjá FH þar sem hann er uppalinn en bróðir hans er Atli Guðnason leikmaður ársins á Íslandsmótinu í sumar.

Árni Freyr kom til ÍR fyrir tímabilið 2008 og skoraði þá 17 mörk í 19 leikjum fyrir liðið í 2. deildinni og var valinn leikmaður ársins í vali fyrirliða og þjálfara fyrir Fótbolta.net.

Liðið komst þá upp í 1. deildina og í sumar lék hann 21 leik og skoraði 16 mörk í þeirri deild og var í lokin valinn í lið ársins í vali fyrirliða og þjálfara fyrir Fótbolta.net.

Fyrri samningur hans við ÍR átti að renna út í árslok en hann hefur nú framlengt honum og verður því áfram með liðinu.

Bragi Björnsson formaður meistaraflokksráðs var ánægður með að halda Árna Frey og Guðlaugi Baldurssyni þjálfara sem verður áfram.

,,Það er gríðarleg ánægja með að Guðlaugur verði áfram með ÍR liðið og Árni Freyr hafi gert nýjan samning. Með því sýnum við að við ætlum okkur að gera enn betur miðað við síðasta sumar,\" sagði Bragi við þetta tækifæri við Fótbolta.net í kvöld.

,,Auðvitað ætlum við fyrst og fremst að halda okkar leikmennahópi og svo eigum við marga unga ÍR-inga sem við ætlum að styrkja og bæta enn meira í höndum Guðlaugs þjálfara. Við ætlum að búa til gott 1. deildarlið sem getur hugsað sér stærri hluti.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.