23.11.07 - 12:11
Magnús Már Einarsson
Halldór Hermann í Fram (Staðfest)

Halldór í leik með Fjarðabyggð í sumar.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Halldór í leik með Fjarðabyggð í sumar.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Miðjumaðurinn Halldór Hermann Jónsson hefur gert tveggja ára samning við Fram en hann kemur til félagsins frá Fjarðabyggð. Halldór Hermann staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Halldór Hermann sem er 23 ára gamall hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Fjarðabyggðar í nokkur ár og fylgt liðinu úr þriðju deild upp í þá fyrstu þar sem liðið endaði í fimmta sæti í sumar.
Halldór lék 25 leiki með Fjarðabyggð í sumar í fyrstu deildinni og í bikarnum og skoraði í þeim tvö mörk.
Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram þekkir vel til Halldórs þar sem hann þjálfaði lið Fjarðabyggðar í tvö ár áður en hann tók við Fram í haust.
Halldór er annar leikmaðurinn sem Fram fær en liðið samdi við Auðun Helgason á dögunum. Þá er Jón Þorgrímur Stefánsson á leið til liðsins frá HK eins og við greindum frá í gærkvöldi.