Fotbolti.net
23.11.07 - 15:31
Magnús Már Einarsson

Jón Þorgrímur Stefánsson í Fram (Staðfest)

Jón Þorgrímur í baráttu við Óðinn Árnason í sumar.  Þeir verða núna liðsfélagar hjá Fram.

Jón Þorgrímur í baráttu við Óðinn Árnason í sumar. Þeir verða núna liðsfélagar hjá Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Kantmaðurinn Jón Þorgrímur Stefánsson hefur gert tveggja ára samning við Fram en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Þessi 32 ára kant- og sóknarmaður kemur frá HK þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil.

Jón kom til uppeldisfélags síns, HK, frá FH, árið 2006. Hann var hjá FH í sex ár og varð Íslandsmeistari með félaginu árin 2004 og 2005.

Samningur Jóns Þorgríms við HK rennur út um áramót en hann hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Fram og leika með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar.

Jón Þorgrímur er þriðji leikmaðurinn sem Fram fær frá því að tímabilinu lauk í haust en liðið hefur einnig fengið varnarmanninn Auðun Helgason sem og miðjumanninn Halldór Hermann Jónsson frá Fjarðabyggð eins og við greindum frá fyrr í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.