Fotbolti.net
23.11.09 - 11:06
Magnús Már Einarsson

Kristján Guðmunds tekur við færeysku meisturunum (Staðfest)

Kristján Guðmunds tekur við færeysku meisturunum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson, fyrrum þjálfari Keflavíkur, hefur verið ráðinn þjálfari hjá færeysku meisturunum HB en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi hjá félaginu nú fyrir stundu.
Kristján hefur skrifað undir tveggja ára samning við HB en hann tekur við liðinu af Sámal Erik Hentze.

Undanfarin fimm ár hefur Krisján stýrt Keflavík en liðið varð meðal annars bikarmeistari undir hans stjórn árið 2005.

Kristján tók við Keflavík rétt fyrir mót sumarið 2005 er Guðjón Þórðarson hætti með liðið.

Í sumar gekk Keflavík ekki sem skyldi og í kjölfarið hætti Kristján og Willum Þór Þórsson tók við af honum.

HB varð færeyskur meistari í ár eftir að hafa lent í öðru sæti deildarinnar fyrir ári síðan. HB hefur alls orðið fimm sinnum meistari síðan árið 2002.

Með liðinu leikur meðal annars Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram, en hann var valinn leikmaður ársins í færeysku deildinni á nýliðnu tímabili.

Heimild: Heimasíða HB

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.