23.12.11 - 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Jose Molina tekinn við af Villarreal (Staðfest)

Jose Molina er fyrrum markvörður.

Mynd: Getty Images

Jose Molina er fyrrum markvörður.

Mynd: Getty Images
Jose Molina hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Villarreal og tekur við af Juan Carlos Garrido sem var rekinn fyrir lélegan árangur með liðinu.
Villarreal hefur átt afleitt tímabil og situr í 17 sæti deildarinnar. Auk þess féll liðið úr leik í spænska Konungsbikarnum fyrir 3. deildarliðinu Mirandes fyrr í vikunni og tapaði öllum leikjum sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Jose Molina tekur nú við út tímabilið en hann stýrði varaliði félagsins. Molina er fyrrum markvörður og spilaði með Villarreal á árum áður.
Fyrsti leikur hans við stjórn Villarreal verður gegn Valencia í spænsku úrvalsdeildinni eftir áramót, nánar tiltekið þann 8 janúar á heimavelli.