Fotbolti.net
23.12.11 - 18:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Eduardo Vargas til Napoli (Staðfest)

Eduardo Vargas til Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, hefur staðfest að félagið hafi krækt í Eduardo Vargas frá Universidad de Chile.
Læknir Napoli flaug til Síle og skoðaði Vargas áður en hann gaf grænt ljós.

„Það voru sterk lið sem vildu fá þennan leikmann en við unnum samkeppnina. Við erum alltaf í leit að ungum og góðum leikmönnum til að styrkja Napoli,\" segir De Laurentiis.

Vargas er 22 ára sóknarmaður sem verður löglegur með Napoli í Meistaradeildinni þegar 16-liða úrslitin fara fram í febrúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.