23.12.11 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Diego Simeone tekur við Atletico Madrid (Staðfest)

Diego Simeone.

Mynd: Getty Images

Diego Simeone.

Mynd: Getty Images
Diego Simeone hefur verið ráðinn þjálfari Atletico Madrid en hann tekur við liðinu af Gregorio Manzano sem var rekinn í gær.
Hinn 42 ára gamli Simeone var áður þjálfari Racing Club í Argentínu en hann hætti þar síðastliðinn þriðjudag.

Simeone lék með Atletico Madrid frá 1994 til 1997 og aftur frá 2003 til 2005 en hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins.
Atletico Madrid er sem stendur í tíunda sæti La Liga með 19 stig eftir 16 umferðir en liðið datt einnig úr leik í spænska bikarnum í vikunni eftir tap gegn B-deildarliði Albacete.
Stuðningsmenn félagsins eru ekki ánægðir með hvernig félagið hefur verið rekið en framherjarnir Sergio Aguero og Diego Forlan fóru báðir frá Atletico í sumar.
Simeone á nú að reyna að bæta gengi liðsins en margir muna eftir þegar David Beckham sparkaði í hann á HM 1998 og fékk rauða spjaldið fyrir vikið eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Heimild: Reuters