24.01.07 - 14:01
Magnús Már Einarsson
Mads Beierholm til Fylkis (Staðfest)

Úr lei Fylkis og ÍA síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Úr lei Fylkis og ÍA síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Fylkir hefur fengið til liðs við sig danska miðjumanninn Mads Beierholm frá Sönderjyske en hann var til reynslu hjá félaginu á dögunum. Hann mun koma hingað til lands um mánaðarmótin febrúar-mars.
Beierholm sem er 22 ára gamall hefur leikið 37 landsleiki með yngri landsliðum Dana.
Hann varð 16 ára gamall yngsti leikmaðurinn í sögu dönsku úrvalsdeildarinnar í ágúst 2001 í leik með Vejle gegn Esbjerg og tveimur vikum síðar varð hann yngsti markaskorari sömu deildar er hann skoraði fyrir Vejle gegn Viborg.
Beierholm lék sex leiki með Sönderjyske í úrvalsdeildinni dönsku í fyrra en keppnistímabilið 2001-2002 lék hann 37 leiki með Vejle í sömu deild.

Heimild: Heimasíða Fylkis