Fotbolti.net
24.01.08 - 08:12
Hafliði Breiðfjörð

Boban Jovic í Selfoss (Staðfest)

Boban Jovic í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Miðvallarleikmaðurinn sterki Boban Jovic er genginn í raðir Selfoss frá Völsungum og skrifaði í gær undir samning við Selfyssinga þess efnis.
,,Við leggjum af stað í mót með þrjá útlendinga, eins og undanfarinn ár. Andy er að hefja sitt þriðja tímabil hér og svo fengum við Dusan frá KS og nú bætist Boban við hópinn, sem er annars að mestu skipaður heimamönnum," sagði Tómas Þóroddsson talsmaður liðsins í samtali við Fótbolta.net í gær.

Boban Jovic verður 33 ára gamall á árinu. Hann hefur verið hér á landi í fjölda ára og lék 15 leiki með Völsungum í 2. deildinni í fyrrasumar og skoraði í þeim þrjú mörk auk þess að leika þrjá leiki í VISA bikarnum og skora eitt mark.

Selfyssingar höfðu áður fengið Gunnar Borgþórsson frá Aftureldingu auk þess sem Sævar Þór Gíslason framlengdi samningi sínum við félagið. Liðið leikur í 1. deildinni á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.