Fotbolti.net
24.01.08 - 11:15
Magnús Már Einarsson

Roy Carroll til Derby á láni (Staðfest)

Roy Carroll til Derby á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Derby hefur fengið markvörðinn Roy Carroll á láni frá Glasgow Rangers út þetta tímabil.
Þessi þrítugi leikmaður er sá sjöundi sem Derby fær í janúar en hann mun núna berjast við við Lewis Price og Stephen Bywater um markvarðarstöðuna hjá Derby.

,,Þetta hefur tekið lengri tíma en ég hafði vonast eftir en ég er viss um að biðin sé þess virði," sagði Paul Jewell stjóri Derby.

,,Roy er frábær markvörður, hann hefur spilað á meðal þeirra bestu, ég hef unnið með honum í stuttan tíma áður svo ég þekki hann vel," bætti Jewell við.

Carroll kom til Rangers frá West Ham síðastliðið sumar en þessi fyrrum markvörður Manchester United hefur ekki náð að festa sig í sessi í Skotlandi og leikið einungis einn leik í úrvalsdeildinni þar í landi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.