Fotbolti.net
24.01.08 - 21:49
Hafliði Breiðfjörð

Bjarki Freyr Guðmundsson í Þrótt (Staðfest)

Bjarki Freyr handsalar samninginn með formanni Þróttar í dag.

Bjarki Freyr handsalar samninginn með formanni Þróttar í dag.

Canon

Mynd: Þróttur

Markvörðurinn Bjarki Freyr Guðmundsson er genginn í raðir Þróttar úr Keflavík og skrifaði undir samning þess efnis við Þróttarana í dag. Bjarki hafði lýst því yfir í haust að hann vildi spila á höfuðborgarsvæðinu í sumar vegna atvinnu sinnar og fékk sig því lausan undan samningi hjá Keflavík.
Bjarki er annar markvörðurinn sem semur við Þrótt fyrir komandi tímabil því áður hafði Ólafur Þór Gunnarsson samið við félagið en hann kemur úr FH. Ólafur hafði reyndar spilað með Þrótti undanfarin tvö ár sem lánsmaður frá FH.

Bjarki var hjá Keflavík í fyrrasumar þar sem hann hóf tímabilið sem varamarkvörður en vann sér svo sæti í liðinu og spilaði á endanum sjö leiki í Landsbankadeildinni og einn í bikarnum. Hann er á 32 aldursári.

Hjá Þrótti hittir hann fyrir Hjört Hjartarson fyrrum liðsfélaga sinn hjá ÍA sem hann lék með 2005 og 2006. Hann hafði komið óvænt til ÍA í upphafi tímabils 2005 þegar ljóst varð að Þórður Þórðarson varð að hætta knattspyrnuiðkun. Áður hafði hann leikið með Stjörnunni og KR.

Ólafur Þór er erlendis sem stendur en kemur hingað til lands í apríl og þá má búast við harðri baráttu um markmannsstöðuna hjá Þrótti því auk hans og Bjarka hefur félagið einnig þá Daníel Karlsson og Andra Fannar Helgason til að verja markið.

Heimild: Vefsíða Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.