Fotbolti.net
24.01.10 - 09:14
Hafliði Breiðfjörð

Jan Mucha samdi við Everton og kemur í sumar (Staðfest)

Mucha á Laugardalsvelli í haust.

Mucha á Laugardalsvelli í haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Everton hefur staðfest að félagið hafi komist að samkomulagin um að fá Jan Mucha markvörð Legia Warsaw í lok tímabilsins.
David Moyes stjóri liðsins sagði á föstudag að félagið væri í viðræðum um að fá markvörðinn sem kemur frítt til félagsins.

Hann hefur nú skrifað undir undanfara samnings við félagið og mun svo koma í sumar þegar samningur hans við Legia rennur út.

Mucha sem er 27 ára gamall skrifaði undir þriggja ára samning og mun koma til Everton þegar hann lýkur keppni á HM í Suður Afríku þar sem hann leikur með Slóvakíu.

Þess má til gamans geta að Matus Mucha, bróðir Jan Mucha, lék með Árborg í 3.deildinni á Íslandi síðastliðið sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.