Fotbolti.net
24.01.10 - 10:04
Hafliði Breiðfjörð

Jóna Benný og Eydís Anna til Þróttar (Staðfest)

Jóna Benný er komin í Þrótt.

Jóna Benný er komin í Þrótt.

Canon

Mynd: Sindri

Kvennaboltinn
Jóna Benný Kristjánsdóttir og Eydís Arna Líndal hafa skipt í 1. deildarlið Þróttar.
Jóna Benný sem verður þrítug á árinu hefur mikla reynslu með Sindra, Magna, Hömrunum og Draupni þar sem hún hefur leikið nærri 200 leiki í deild og bikar og skorað um 150 mörk.

Eydís Arna hafði leikið með henni hjá Sindra fyrir tveimur árum síðan.

Hún verður tvítug á árinu og hefur leikið undanfarnar þrjár leiktíðir með meistaraflokki Sindra.

Samtals hefur hún leikið 34 leiki með meistaraflokki á þessum þremur árum og skorað 3 mörk. Hún var valin besti leikmaður Sindra á síðustu leiktíð.

Þróttur hafði áður fengið til sín Hrefnu Huld Jóhannesdóttur frá KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.