Fotbolti.net
24.02.06 - 18:24
Magnús Már Einarsson

Birkir til Þróttar (Staðfest)

Birkir í skallabolta í leik gegn ÍR.

Birkir í skallabolta í leik gegn ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Birkir Pálsson fyrirliði Huginn úr annarri deild hefur gengið til liðs við Þrótt og er hann löglegur með liðinu í leiknum gegn Fjölni í deildabikarnum í Egilshöll í kvöld.
Birkir sem getur leikið bæði á vörn og á miðju hefur verið einn af sterkari leikmönnum Huginn undanfarin ár. Hann lék alls fimmtán leiki í annarri deildinni í fyrra þar sem Seyðfirðingar enduðu í áttunda sæti.

Þá hafa Þróttarar einnig fengið Andra Frey Björnsson frá Val og Gunnar Frey Róbertsson frá Víking en báðir þessir leikmenn gengu upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.