24.02.12 - 16:05
Elvar Geir Magnússon
Spennandi danskur varnarmaður í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Alexander Scholz, 19 ára danskur varnarmaður, hefur samþykkt tveggja ára samning við Stjörnuna. Hann er væntanlegur til landsins á mánudagskvöld.
Scholz er miðvörður sem hefur leikið fyrir yngri landslið Danmerkur en hann á 4 U19 landsleiki að baki.

Þessi efnilegi leikmaður komst í aðallið Vejle mjög ungur að aldri og var talinn einn allra efnilegasti miðvörður landsins.
Það kom því mörgum á óvart þegar hann ákvað að leggja fótboltaskóna á hilluna tímabundið til að klára nám sitt og ferðast um heiminn.
Hann hefur nú ákveðið að demba sér aftur í boltann og semur við Stjörnuna gegnum Henrik Bödker sem er í þjálfarateymi liðsins.