24.03.06 - 22:09
Magnús Már Einarsson
ÍBV semur við Jonah Long (Staðfest)

Úr leik ÍBV og Vals síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Úr leik ÍBV og Vals síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
ÍBV hefur gert tveggja ára samning við Jonah Long frá Bandaríkjunum en þetta staðfesti Gísli Hjartarson stjórnarmaður hjá ÍBV við Fótbolti.net í kvöld.
Long þessi spilaði síðast í Ástralíu en hann lék í 2-1 sigri Eyjamanna á Íslandsmeisturum FH í deildabikarnum í kvöld og þótti hann standa sig vel í hægri bakverðinum gegn Tryggva Guðmundssyni sem var markakóngur í Landsbankadeildinni í fyrra.
Eftir að Long er kominn eru fimm erlendir leikmenn í herbúðum Eyjamanna en auk hans eru Ian Jeffs, Christopher Vorenkamp, Andrew Mwesingwa og Bo Henriksen hjá liðinu. Þá bendir allt til þess að Matt Garner muni leika með Eyjamönnum í sumar eins og við greindum frá og þá gætu verið sex erlendir leikmenn hjá félaginu.