Fotbolti.net
24.03.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jóhann Björn og Víglundur Páll til Langevag (Staðfest)

Jóhann Björn og Víglundur Páll til Langevag (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Jóhann Björn Valsson og Víglundur Páll Einarsson hafa gengið til liðs við Langevog í Noregi.
Jóhann Björn fór til Noregs í febrúar og hefur æft með Langevog undanfarnar vikur.

Jóhann er uppalinn hjá Aftureldingu og hafði æft og leikið með Mosfellingum í vetur áður en að hann hélt til Noregs.

Víglundur Páll hefur undanfarin tvö ár leikið með Hetti en hann lék áður með Einherja, Fjarðabyggð og Þór hér á landi.

Auk þess að leika með Langevog þá mun Víglundur Páll þjálfa U16 ára liðið hjá félaginu en það er mjög sterkt á á norskan mælikvarða.

,,Mér fannst ég þurfa nýja áskorun, og þegar að það var hringt í mig og mér boðið þetta var ég strax spenntur. Ég tel að þetta muni bæði bæta mig sem leikmann og svo að sjálfsögðu sem þjálfara,\" sagði Víglundur við Fótbolta.net.

,,Ég vil nota tækifærið og þakka öllu því frábæra fólki sem ég hef starfað með hér á Egilsstöðum, þjálfurum, leikmönnum og að sjálfsögðu stjórninni og öðrum sem standa að fótboltanum á héraði.\"

Langevog er staðsett rétt hjá Álasund í Noregi en liðið féll úr norsku 3.deildinni í fyrra og ætlar sér beint upp aftur í ár.
Jóhann Björn Valsson.  Víglundur Páll er á efri myndinni.

Jóhann Björn Valsson. Víglundur Páll er á efri myndinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.