Fotbolti.net
24.03.10 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Daníel Einarsson í Hauka (Staðfest)

Daníel Einarsson í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Daníel Einarsson hefur fengið félagaskipti í Hauka en hann kemur til félagsins frá ÍH.
Daníel er miðjumaður en hann þekkir til hjá Haukum eftir að hafa leikið með liðinu í fyrstu deildinni árið 2004 og 2005.

Síðan þá hefur Daníel leikið með ÍH og í fyrra skoraði hann þrjú mörk í átján leikjum í annarri deildinni með sameiginlegu liði ÍH/HV.

Daníel verður líklega ekki með Haukum í næstu tveimur leikjum liðsins í Lengjubikarnum gegn Njarðvík og Fjarðabyggð en hann á eftir að komast í betra form áður en að hann byrjar að spila með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.