Fotbolti.net
24.03.10 - 14:29
Magnús Már Einarsson

Marel Baldvinsson og Dennis Danry í Stjörnuna (Staðfest)

Ólafur Karl Finsen og Marel Baldvinsson á fréttamannafundi Stjörnunnar í dag.

Ólafur Karl Finsen og Marel Baldvinsson á fréttamannafundi Stjörnunnar í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marel Baldvinsson og Dennis Danry hafa samið við Stjörnuna en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Garðabæ nú rétt í þessu. Leikmennirnir skrifuðu undir eins árs samning við Stjörnuna.
Marel, sem er 29 ára, lék með Val á í fyrra en síðastliðið haust ákvað hann að leggja skóna á hilluna.

Þessi sterki framherji æfði þó áfram með Val í vetur og Hlíðarendaliðið reyndi að semja við hann en án árangurs.

Marel kom til Vals frá Breiðablik fyrir tæpu ári síðan en hann skoraði þrjú mörk í nítján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Marel, sem er 29 ára gamall, þekkir aðeins til í Garðabæ því að hann hefur þjálfað 2.flokk Stjörnunnar/Álftanes undanfarin tvö ár. Hann mun einnig sjá um sóknaræfingar hjá meistaraflokki Stjörnunar á þessu tímabili.

Dennis Danry er danskur varnar og miðjumaður en hann hefur leikið með Þrótti undanfarin tvö ár.

Þessi 31 árs gamli leikmaður lék alla leiki Þróttar í Pepsi-deildinni í fyrra en hann fór síðan frá félaginu síðastliðið haust.

Danry æfði á dögunum með Rochester Rhinos í Bandaríkjunum en hann hefur núna samið við Stjörnuna.

Á fréttamannafundinum hjá Stjörnunni í dag var hinn ungi Ólafur Karl Finsen einnig kynntur til sögunnar en hann kom til félagsins á láni frá AZ Alkmaar á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.