Fotbolti.net
24.03.26 - 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Búinn að taka frí í vinnunni og ekki mikið talað við Djuric í sumar

Danijel Dejan Djuric.

Danijel Dejan Djuric.

Canon

Mynd: KA

„Það er svona öld í næsta deildarleik hjá KA og Þór," söng rapparinn Saint Pete í stuðningsmannalagi KA. Svo er ekki því KA og Þór munu eigast við í Bestu deildinni í sumar. Þórsarar eru komnir upp og loksins eru Akureyrarliðin tvö í Bestu deildinni á sama tíma.
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
TENGT EFNI

Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"

Liðin mætast á Þórsvelli þann 2. maí næstkomandi og eru stuðningsmenn liðanna búnir að merkja það inn í dagatalið hjá sér.

„Ég er búinn að taka mér frí í vinnunni, maður er ekki að fara að missa af þessu," sagði Aron Elvar Finnsson, stuðningsmaður Þórs, í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.

„Vonandi verður þetta eitthvað sem ekki hefur sést áður á Íslandi. Þetta verður einhver geðveiki, bæði innan vallar og utan. Ég hef miklar væntingar. Þetta verður einhver sturlun."

Það er mikill rígur á milli þessara tveggja félaga.

„Maður er búinn að mæta á HK - Breiðablik, KR - Valur og allt þetta sem á að kallast einhver rígur. Það er ekkert í líkingu við þetta. Þegar liðin voru saman í Lengjudeildinni fyrir nokkrum árum þá gerðist alls konar," sagði Aron.

Tala ekki mikið við hann í sumar
Logi Páll Aðalsteinsson var einnig í þættinum en hann er vinur Danijel Dejan Djuric sem samdi við KA á dögunum. „Það er svolítið minn maður," sagði Logi og bætti við að hann væri sár að sjá hann fara í gulu treyjuna.

„Ég er ekki að fara að tala mikið við hann í sumar, því miður."

„Ef ég þekki Mjölnismenn rétt þá verður búið að semja eitthvað gott lag um hann fyrir 2. maí," sagði Aron. „Maður heldur mikið með þessum gæja og það er erfiðara núna þegar hann er kominn í þetta lið. Þetta er ekkert grín, Þór og KA," sagði Logi.

En af hverju er þessi rígur svona stór?

„Maður er bara alinn upp svona," sagði Logi. „Þetta er frábær spurning. Þessi rígur er mörgum kynslóðum eldri en við," sagði Aron.

„Manni er kennt að hata gulan og það er skítalykt af þessum treyjum," sagði Logi. „Mér var sagt að halda niðri í mér andanum þegar við keyrðum fram hjá KA heimilinu þegar ég var yngri," sagði Aron.

Á næstu dögum fáum við að heyra hvað KA menn segja um þennan ríg þegar Niðurtalningin með stuðningsmönnum KA-manna birtist hér á síðunni. Þessir leikir verða mjög athyglisverðir í sumar.
Logi Páll og Aron Elvar.

Logi Páll og Aron Elvar.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Stuðningsmenn Þórsara eru ástríðufullir.

Stuðningsmenn Þórsara eru ástríðufullir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.