Fotbolti.net
24.04.07 - 10:38
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Reading kaupir Andrey Bikey frá Lokomotiv Moskvu (Staðfest)

Bikey í leik með Reading fyrr á þessu tímabili

Bikey í leik með Reading fyrr á þessu tímabili

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hafa gengið frá kaupunum á varnarmanninum Andrey Bike frá rússneska félaginu Lokomotiv Moskvu og borga þeir eina milljón punda fyrir kappann.
Bikey, sem er 22 ára gamall kamerúnskur landsliðsmaður, hefur verið á láni hjá Reading frá því í ágúst og skrifaði hann undir þriggja ára samning við íslendingaliðið.

,,Ég er mjög ánægður með að Andrey hafi gengið endanlega til liðs við okkur. Hann hef aðlagast mjög vel hér hjá Reading og hann hefur sýnt hvað hann getur gert. Hann er einnig góður karakter sem passar inn í hópinn og hann verðir mikilvægur leikmaður hjá okkur á næstu árum," sagði John Madejski eigandi Reading.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.