Valdimar Jóhannsson er búinn að framlengja samning sinn við Njarðvík út árið 2028. Hann verður því hjá félaginu næstu þrjú keppnistímabil.
Valdimar gerði flotta hluti á sínu fyrsta ári í Njarðvík þar sem hann skoraði 10 mörk í 36 KSÍ-leikjum og er verðlaunað með nýjum samningi.
Valdimar, fæddur 2001, er uppalinn á Selfossi þar sem hann var í stóru hlutverki, en Selfoss leikur í 2. deildinni eftir slæmt gengi undanfarinna ára.
„Það er mikið gleðiefni að halda Valdimar áfram í grænu treyjunni, og um alvöru sumargjöf að ræða fyrir okkur Njarðvíkinga," segir meðal annars í tilkynningu frá Njarðvík.
Valdimar líður mjög vel hjá Njarðvík og hefur fulla trú á að liðið geti komið sér upp í Bestu deildina.
„Mér finnst ég fyrst og fremst frekar heppinn að fá að taka þátt í þessu. Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri. Ég get ekki beðið eftir sumrinu og næstu árum," sagði Valdimar við undirskriftina.
„Það er mikil spenna í klúbbnum og við ætlum okkur stóra hluti. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, ég er svo spenntur. Við ætlum okkur upp og auðvitað viljum við vinna deildina."
Njarðvík heimsækir Þrótt R. í fyrstu umferð nýs tímabils í Lengjudeildinni á morgun.























