Fotbolti.net
24.06.06 - 17:20
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Sebastien Squillaci til Lyon (Staðfest)

Squillaci í baráttunni við Mateja Kezman með Monaco

Squillaci í baráttunni við Mateja Kezman með Monaco

Canon

Mynd: Getty Images

Lyon gengu í dag frá kaupunum á franska varnarmanninum Sebastien Squillaci frá Monaco og borga þeir fyrir hann 5,5 milljónir punda.
Squillaci, sem er 25 ára gamall, skrifar undir fjögurra ára samning við félagið og mun hann berjast við félagana Cris og Cacapa um stöðuna í byrjunarliðinu.

Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka, fann ekki pláss fyrir Squillaci í landsliðinu fyrir HM og valdi í hans stað Jean-Alain Boumsong sem hefur átt slakt tímabil með Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.