24.06.08 - 15:21
Þórður Már Sigfússon
Þróttur fær danskan framherja að láni (Staðfest)

Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar, er búinn að næla í annan dana

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar, er búinn að næla í annan dana

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur frá Reykjavík hefur fengið framherjann, Jesper Sneholm, að láni frá danska 1. deildarliðinu Herfölge.
Fram kemur á heimasíðu danska liðsins að Dennis Danry, leikmaður Þróttar og fyrrum samherji Sneholms hjá Herfölge, hafi haft hönd í bagga með för hins síðarnefnda til Íslands.
Sneholm er tvítugur að aldri og mun lánssamningurinn gilda fram til 31. október.
Hann mun hins vegar ekki geta leikið með Þrótti fyrr en 15.júlí en þá opnar félagaskiptaglugginn að nýju hér á landi.
Sneholm er tvítugur að aldri og mun lánssamningurinn gilda fram til 31. október.
Hann mun hins vegar ekki geta leikið með Þrótti fyrr en 15.júlí en þá opnar félagaskiptaglugginn að nýju hér á landi.
Heimild: Heimasíða Herfölge
