24.06.09 - 15:42
Magnús Már Einarsson
Birmingham fær Giovanny Espinoza frá Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham hefur keypt varnarmanninn Giovanny Espinoza frá Barcelona Sporting Club í Ekvador.
Espinoza er sjálfur frá Ekvador en hann á yfir 80 landsleiki að baki og hefur leikið tvívegis á HM.
Espionza er fimmti leikmaðurinn sem kemur til Birmingham í sumar en nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni höfðu áður samið við Christian Benitez, Scott Dann, Stephen Carr og Joe Hart.
Alex McLeish, stjóri Birmingham, virðist vera að styrkja vörnina því auk þess að fá Espinoza þá er líklegt að Roger Johnson varnarmaður Cardiff komi á næstu dögum.

Heimild: Sky