24.06.11 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Adrian Mutu til Cesena (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cesena tilkynnti það í gærkvöldi að félagið hefði keypt sóknarmanninn Adrian Mutu frá Fiorentina. Cesena er smálið í ítölsku A-deildinni og koma þessi félagaskipti nokkuð á óvart.
Mutu er 32 ára Rúmeni sem kom til Fiorenina frá Juventus 2006.
Hann segist vera fullur tilhlökkunar fyrir nýju verkefni. Talið var að Cesena gæti ekki ráðið við launakostnað Mutu en hann samþykkti að taka á sig launalækkun.
Ferill Mutu hefur alls ekki verið flekklaus en Chelsea rifti samningi við hann á sínum tíma eftir að hann féll á lyfjaprófi þegar kókaín fannst í blóði hans.