24.06.11 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Gasperini tekur við Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska stórveldið Inter hefur staðfest að Gian Piero Gasperini verði þjálfari liðsins á næsta tímabili.
Hinn 53 ára gamli Gasperini mun skrifa undir tveggja ára samning við Inter á næstu dögum.

Gasperini tekur við liði Inter af Leonardo en hann er væntanlega að taka við sem yfirmaður íþróttamála hjá Paris St Germain í Frakklandi.
Leonardo tók við Inter af Rafael Benitez í janúar og stýrði því síðan út síðasta tímabil.
Gasperini hefur stýrt liði Genoa með fínum árangri frá því árið 2006. Áður þjálfaði hann einnig Cronote í neðri deildunum sem og unglingalið Juventus.

Heimild: Sporting Life