Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Fella Lyon niður um deild
Mynd: Lyon
Mynd: EPA
Franska stórveldið Lyon hefur verið fellt niður um deild. DNCG, fjármálaeftirlit franska fótboltaheimsins, er búið að staðfesta ákvörðun sína um að fella félagið niður í Ligue 2.

Greint var upprunalega frá þessu í nóvember í fyrra, þegar DNCG gaf Lyon frest til lok tímabilsins til að laga skuldastöðu sína og halda þannig sæti sínu í Ligue 1.

Lyon varð ekki að ósk fjármálaeftirlitsins sem setti félagið í bann frá því að kaupa leikmenn. John Textor, eigandi Lyon, er eigandi fleiri félaga víða um heim og sendi hann Thiago Almada til Lyon á fríum lánssamningi frá Botafogo, þar sem brasilíska félagið sá alfarið um að greiða laun leikmannsins.

Lyon seldi leikmenn fyrir um 30 milljónir evra í janúar og fékk svo aðrar 50 milljónir inn fyrir Rayan Cherki og Said Benrahma í sumar, en það er ekki nóg. DNCG vildi sjá Lyon lækka skuldastöðu sína um 175 milljónir, sem franska félaginu tókst ekki að afreka.

Textor reyndi einnig að selja hlut sinn í enska úrvalsdeildarfélaginu Crystal Palace auk þess að selja kvennalið Lyon í tilraun til að laga skuldastöðu franska félagsins. Þessar tilraunir virðast ekki hafa nægt til að bjarga félaginu.

Búist er sterklega við því að Lyon muni áfrýja dómnum. John Textor er staðráðinn í því að fá ákvörðuninni snúið við.

„Ekki hafa áhyggjur, við erum með nóg af pening til að laga stöðuna. Ekki hlusta á fjölmiðla, ekki hafa neinar áhyggjur," sagði Textor meðal annars í viðtali í maí. Hann var einnig kokhraustur eftir sigur Botafogo gegn PSG á HM félagsliða á dögunum.

„Það eru 50 milljónir evra sem vantar uppá. Haldið þið að ég ætli að gefast upp útaf 50 milljónum? Það er allt í góðu, við verðum ekki felldir niður um deild."

Lyon endaði í 6. sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tryggði sér þannig þátttökurétt í Evrópudeildinni komandi haust.

   15.11.2024 20:30
Lyon dæmt niður um deild útaf fjárhagsvandræðum

Athugasemdir
banner
banner