24.07.07 - 15:54
Hafliði Breiðfjörð
Pienaar til Everton (Staðfest)

Pienaar á Nordica Hótel í Reykjavík.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Suður Afríkumaðurinn Steven Pienaar er genginn í raðir Everton en hann fékk atvinnuleyfi á Englandi í dag og í kjölfarið var hægt að ganga frá eins árs samningi hans við félagið.
Pienaar sem er 25 ára gamall kemur frá Borussia Dortmund í Þýskalandi en hann hafði farið til félagsins síðasta sumar frá Ajax og átti að leysa stöðu Tomas Rosicky sem fór til Arsenal.
Hann náði aldrei að sanna sig hjá Dortmund og skoraði ekkert mark í 24 leikjum í deildinni. Hann hefur æft með Everton í æfingabúðum liðsins í Los Angeles.
Pienaar kom hingað til lands í ágústmánuði árið 2004 og lék með Suður Afríku gegn Íslandi í leik sem Ísland vann 4-1 á Laugardalsvelli.
,,Ég er mjög spenntur yfir því að hafa gengið til liðs við rótgróið félag eins og Everton," sagði Pienaar. ,,Það er alltaf gott fyrir leikmenn að spila í Evrópu og ég hlakka til þess að snúa aftur því ég var ekki með á síðustu leiktíð."

Heimild: BBC