Fotbolti.net
24.07.09 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Felipe Caicedo lánaður til Sporting Lisbon (Staðfest)

Caicedo í leik með Man City

Caicedo í leik með Man City

Canon

Mynd: Getty Images

Felipe Caicedo, leikmaður Manchester City hefur verið lánaður til portúgalska stórliðsins Sporting Lisbon út tímabilið.
Caicedo, sem er 20 ára gamall framherji ákvað að fara á lán til Sporting í kjölfar komu Emmanuel Adeybayor, Roque Santa Cruz og Carlos Tevez, en hann var augljóslega því ekki í plönum Mark Hughes, stjóra félagsins.

Caicedo sem hefur skorað 7 mörk í 35 leikjum fyrir Manchester City er því annar framherjinn sem fer á lán frá félaginu, en brasilíski framherjinn Jó fór til Everton á nýjan leik eftir farsælan árangur þar á síðasta tímabili.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.