Fotbolti.net
24.07.09 - 11:19
Magnús Már Einarsson

Esteban Granero til Real Madrid (Staðfest)

Esteban Granero til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur keypt miðjumanninn Esteban Granero aftur frá Getafe en talið er að kaupverðið hljóði upp á fjórar milljónir evra.
Þessi 22 ára gamli leikmaður kom upp úr unglingastarfi Real Madrid en hann gekk í raðir Getafe fyrir tveimur árum.

Hann hefur núna gert fjögurra ára samning við Real Madrid en hann er fimmti leikmaðurinn sem liðið fær í sumar á eftir Cristiano Ronaldo, Kaka, Karim Benzema og Raul Albiol.

,,Þessi tvö ár hjá Getafe hafa verið góð fyrir mig og ég tel mig vera tilbúinn,\" sagði Granero.

,,Þetta er gott tækifæri fyrir mig til að reyna að vinna mér sæti í liðinu og ég held að ég geti það.\"

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.