24.07.09 - 14:27
Magnús Már Einarsson
Sheffield United kaupir Ched Evans frá Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur keypt Ched Evans framherja Manchester City á þrjár milljónir punda.
Þessi tvítugi Walesverji hefur skrifað undir þriggja ára samning við Evans.
,,Hann er ungur framherji og við erum ánægðir með að hafa unnið kapphlaupið um hann því að það var áhugi frá tveimur öðrum úrvalsdeildarfélögum og tveimur félögum í Championship deildinni,\" sagði Kevin Blackwell stjóri Sheffield United.
Auk þess að fá Evans þá hefur Ryan France, fyrrum miðjumaður Hull, gert tveggja ára samning við Sheffield United.
Þá hefur félagið einnig fengið Keith Treacy á láni frá Blackburn en þessi tvítugi leikmaður mun vera næstu sex mánuðina hjá Sheffield United.

Heimild: BBC