Fotbolti.net
24.07.11 - 09:35
Magnús Már Einarsson

Alieu Jagne í Hauka (Staðfest)

Alieu Jagne í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar hafa samið við framherjann Alieu Jagne sem kom til félagsins á reynslu fyrir tímabilið.

Jagne fékk leikheimild með Haukum í gær og var í byrjunarliðinu í markalausa jafnteflinu gegn BÍ/Bolungarvík.
Jagne hefur undanfarin ár leikið með GIF Sundsvall í Svíþjóð þar sem hann hefur meðal annars spilað með Ara Frey Skúlasyni.

Haukar eru einnig líklega að missa framherjann Ísak Örn Þórðarson en hann hefur verið á láni frá Keflavík í sumar.

Ísak Örn, sem fór út af meiddur í gær, er líklega á leið aftur til Keflavíkur en hann hefur skorað þrjú mörk í ellefu leikjum í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.