Fotbolti.net
24.07.11 - 07:17
Magnús Már Einarsson

Matt Taylor til West Ham (Staðfest)

Matt Taylor til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

West Ham United hefur keypt kantmanninn Matt Taylor frá Bolton en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Þessi 29 ára gamli leikmaður stóðst læknisskoðun hjá West Ham á föstudag og í gær var gengið frá öllum lausum endum.
,,Þetta er ný áskorun fyrir mig og auðvitað vil ég vera hluti af einhverju sérstöku,\" sagði Taylor.

,,Þetta er risastórt félag og ég vil leggja mitt að mörkum ef ég get.\"

Taylor er þriðji leikmaðurinn sem West Ham fær í sumar á eftir Abdoulaye Faye og Kevin Nolan.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.