24.07.11 - 14:00
Hafliði Breiðfjörð
Fitim Morina í Njarðvík (Staðfest) - Þrír fara

Fitim Morina í leik með Val. Hann spilar með Njarðvík út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Njarðvík hefur fengið Fitim Morina til liðs við sig frá Val á láni út þessa leiktíð en hann er tvítugur sóknarmaður sem kom upp úr yngri flokka starfinu hjá Val og hefur fengið að spreyta sig á vormótunum.
Njarðvík er að styrkjast meira fyrir lokasprettinn í 2. deildinni því Rafn Markús Vilbergsson aðstoðarþjálfari hefur verið að æfa á fullu með liðinu og er tilbúinn að spila með liðinu ef á þarf að halda.
Liðið er einnig að fá Gísla Frey Ragnarsson til baka úr meiðslumauk þess sem Einar Helgi Helgason var að koma á láni frá Grindavík eftir að hafa leikið með Njarðvík í fyrra.
Þrír leikmenn hafa hinsvegar yfirgefið Njarðvík. Haraldur Axel Einarsson og Hörður Ingi Harðarson fór í 3. deildina í víði og Bjarni Steinar Sveinbjörnsson til ÍH. Bjarni Steinar og Haraldur eru lánaðir en Hörður skiptir alveg.

Heimild: Vefur Njarðvíkur