Fotbolti.net
24.08.07 - 16:16
Magnús Már Einarsson

Andy Cole til Sunderland (Staðfest)

Andy Cole til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Andy Cole fyrrum framherji Manchester United hefur gert eins árs samning við Sunderland eftir að hafa staðiðst læknisskoðun hjá félaginu.
Þessi 35 ára gamli leikmaður fór frá Portsmouth á dögunum en hann er ekki í góðu leikformi ennþá og ólíklegt er að hann leiki með Sunderland gegn Liverpool um helgina.

Roy Keane stjóri Sunderland spilaði með Cole hjá Manchester United á sínum tíma.

,,Hann er leikmaður sem ég hef alltaf náð vel saman við, það gæti verið öðruvísi núna þegar ég er stjóri."

,,Hann mun hjálpa nokkrum framherjum hjá okkur. Fólk gæti sagt að Andy Cole tali ekki mikið en aðgerðir hans og það sem hann gerir á æfingasvæðinu er mikilvægt,"
sagði Keane.

Cole yfirgaf Manchester United árið 2001 og fór í Blackburn en síðan þá hefur hann leikið með Fulham, Manchester City, Portsmouth og Birmingham á láni á síðustu leiktíð.

,,Ég er mjög spenntur fyrir því að vera hér. Þetta er ný áskorun og vonandi get ég notað reynslu mína til að hjálpa yngri leikmönnum hjá félaginu. Ég hafði nokkra möguleika og ég taldi þennan vera góðan," sagði Cole.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.