Fotbolti.net
24.08.10 - 11:15
Magnús Már Einarsson

Rafik Halliche til Fulham (Staðfest)

Rafik Halliche til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt varnarmanninn Rafik Halliche frá portúgalska félaginu Benfica en kaupverðið er ekki gefið upp.
Þessi 23 ára gamli leikmaður er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Fulham.

,,Að fá tækifæri til að keppa gegn frábærum liðum með liði eins og Fulham er eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um,\" sagði Halliche.

Halliche er frá Alsír en hann lék alla leiki liðsins á HM í Suður-Afríku í sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.