Fotbolti.net
24.08.10 - 19:47
Magnús Már Einarsson

Andre-Pierre Gignac til Marseille (Staðfest)

Andre-Pierre Gignac til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marseille hefur keypt framherjann Andre-Pierre Gignac frá Toulouse á átján milljónir evra.

Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skorað fjögur mörk í sextán leikjum með franska landsliðinu.

,,Ég er mjög stoltur að fá að klæðast treyju Marseille. Þetta er draumur að rætast,\" sagði Gignac.
Gignac er annar framherjinn sem Marseille fær til sín á innan við viku því Loic Remy kom til félagsins í síðustu viku.

Félaginu mistókst hins vegar að fá brasilíska framherjann Luis Fabiano frá Sevilla.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.