24.08.10 - 17:02
Magnús Már Einarsson
Alessandro Diamanti til Brescia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Brescia hefur keypt framherjann Alessandro Diamanti frá West Ham.
Kaupverðið hljóðar upp á 2,2 milljónir evra eða í kringum 1,8 milljón punda. West Ham mun að auki fá 300 þúsund evrur í viðbót ef Brescia nær að halda sæti sínu í Serie A.
Diamanti, sem er 27 ára, skoraði átta mörk í 29 leikjum á síðasta tímabili en fjögur af þessum mörkum komu af vítapunktinum.

Diamanti var á eftir Carlton Cole, Luis Boa Morte og Frederic Piquionne í goggunarröðinni hjá West Ham og því var Avram Grant til í að leyfa honum að fara.
Heimild: Sporting Life