Fotbolti.net
24.08.10 - 18:29
Magnús Már Einarsson

Geremi til Larissa (Staðfest)

Geremi til Larissa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Geremi hefur skrifað undir tveggja ára samning við gríska félagið Larissa.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur meðal annars leikið með Real Madrid og Chelsea á ferli sínum.

Hann yfirgaf Newcastle á síðustu leiktíð og gekk til liðs við Ankaragucu en hann stoppaði síðan stutt við hjá tyrkneska félaginu.

Geremi hefur núna ákveðið að ganga til liðs við Larissa en í kringum 500 stuðningsmenn félagsins tóku vel á móti honum þegar hann mætti til Grikklands í gærkvöldi.

Larissa kom til Íslands síðastliðið sumar en liðið tapaði þá gegn KR í Evrópudeildinni.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.