Fotbolti.net
24.08.11 - 13:24
Magnús Már Einarsson

Dani Pacheco til Atletico Madrid (Staðfest)

Dani Pacheco til Atletico Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur fengið framherjann Dani Pacheco á láni frá Liverpool en samningurinn gildir út júní á næsta ári.

Pacheco virtist vera á leið til Rayo Vallecano fyrir helgi en nú er ljóst að hann mun ganga í raðir Atletico.
Þessi tvítugi leikmaður hefur verið hjá Liverpool frá því árið 2007 en hann á nokkra aðalliðsleiki að baki.

Pacheco skoraði einnig tvö mörk í sex leikjum á láni hjá Norwich síðastliðið vor en hann hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.