Fotbolti.net
24.08.11 - 16:09
Hörður Snævar Jónsson

Juan Mata til Chelsea (Staðfest)

Mata er kominn til Chelsea.

Mata er kominn til Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur gengið frá kapunum á Juan Mata frá Valencia en félagið staðfesti þetta í dag.
TIlboði Chelsea í Mata var tekið um síðustu helgi og stóðst Spánverjinn knái læknisskoðun.

Mata getur leikið á miðjunni sem og á kantinum en hann er 23 ára gamall.

Hann hóf feril sinn hjá Real Madrid en félagið taldi sig ekki hafa not fyrir hann.

Mata á að baki 11 landsleiki með Spánverjum og skorað í þeim fjögur mörk en hann var Evrópumeistari með U21 árs landsliðinu í sumar.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Chelsea á laugardaginn er liðið mætir Norwich.

Þetta eru önnur kaup Andre Villas-Boas á stuttum tíma en hann krækti líka í Romelu Lukaku í síðustu viku.

Heimild: Heimasíða Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.