Fotbolti.net
24.08.23 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd lánar Williams til Ipswich (Staðfest)

Man Utd lánar Williams til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur lánað Brandon Williams til Ipswich út tímabilið. Williams er réttfættur vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá United.

Hann á að baki 51 keppnisleik með United. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í einum leik og tímabilið þar á undan var hann á láni hjá Norwich.
Williams er 22 ára og hittir hann fyrir Kieran McKenna hjá Ipswich. McKenna var þjálfari hjá bæði unglingaliði United og hluti af þjálfarateymi aðalliðsins.

Einhverjar viðræður voru um kaupmöguleika í lánssamningnum en enskir miðlar fjalla um að það slíkur möguleiki fylgi ekki lánssamningnum.

Ipswich fór upp úr ensku C-deildinni á síðasta tímabili og er því í Championship í vetur. Liðið hefur byrjað tímabilið frábærlega og er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.