Fotbolti.net
24.10.09 - 18:03
Hafliði Breiðfjörð

Gestur Ingi til Leiknis – Kári Einarsson áfram (Staðfest)

Gestur (t.v) Sigursteinn Gíslason þjálfari í miðjunni og Kári hægra megin.

Gestur (t.v) Sigursteinn Gíslason þjálfari í miðjunni og Kári hægra megin.

Canon

Mynd: Leiknir

Leiknir í Breiðholti tilkynnti í dag um nýjan leikmann sem gengur til liðs við félagið frá Aftureldingu, Gest Inga Harðarson. Þá var undirritaður nýr samningur við kantmanninn Kára Einarsson.
Gestur Ingi er örvfættur og leikur sem vinstri bakvörður. Hann er 22 ára og hefur síðustu þrjú tímabil leikið með Aftureldingu í Mosfellsbæ en er uppalinn hjá Fram. Á nýliðnu tímabili var hann valinn leikmaður ársins hjá Aftureldingu. Hann á þrjá U17 landsleiki að baki fyrir Íslands hönd.

Kári er 23 ára kantmaður sem hefur leikið í Leiknisbúningnum síðustu tvö tímabil eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu Víkingi Reykjavík. Hann var meiddur í byrjun sumars en kom síðan sterkur inn og lék 16 leiki í 1. deildinni og gerði þrjú mörk. Kári fékk tilboð frá öðrum liðum eftir tímabilið en kaus að skrifa undir nýjan samning við Leikni.

Reiknað er með að Leiknir haldi að mestu þeim leikmannahópi sem liðið hafði í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.