24.11.09 - 17:20
Magnús Már Einarsson
Nigel Quashie til MK Dons á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Milton Keynes Dons hefur fengið Nigel Quashie miðjumann West Ham á láni þar til í janúar.
Quashie hefur æft með MK Dons að undanföru og hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Carlisle í kvöld.
Quashie lék áður með Southampton og Portsmouth en hann kom til West Ham í janúar 2007 skömmu eftir að Eggert Magnússon tók við sem formaður.
Síðan þá hefur Quashie verið mikið úti í kuldanum hjá West Ham en hann hefur einungis leikið sjö leiki með liðinu.
Á síðustu leiktíð var hann á láni hjá Birmingham og síðan Wolves í Championship deildinni.

Heimild: Sky