24.12.08 - 12:01
Magnús Már Einarsson
Guðjón Þórðarson tekinn við Crewe Alexandra (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Guðjón Þórðarson hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Crewe Alexandra í ensku 2.deildinni eða þriðju efstu deild þar í landi en þetta kemur fram á Vísi.is.
Guðjón hefur gert samning við Crewe út tímabilið en hann tekur við liðinu næstkomandi þriðjudag og stýrir því síðan gegn Millwall þann 3.janúar.
Dario Gradi sem hefur stýrt Crewe tímabundið að undanförnu mun vera við stjórnvölinn í leiknum gegn Oldham á föstudaginn.
,,Það er flott að vera kominn aftur í „geimið\". Þetta er krefjandi verkefni en ég hef tekist á við krefjandi verkefni áður, eins og að koma Stoke upp í 1. deild. Ég er hvergi smeykur,\" sagði Guðjón við Vísi en Crewe er í botnsæti 2. deildarinnar
Guðjón hefur áður stýrt Stoke, Barnsley og Notts County á Englandi en hann var látinn fara frá ÍA í sumar eftir að hafa tekið við liðinu haustið 2006.