Fotbolti.net
24.12.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Diljá og Tara Björk í Hauka (Staðfest)

Diljá við undirskriftina.

Diljá við undirskriftina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Haukar sem leika í 1. deild kvenna hafa fengið góðan liðsstyrk því hin unga og efnilega Diljá Helgadóttir skrifaði undir samning við félagið til tveggja ára í vikunni.
Diljá, sem fædd er árið 1994 og spilar sem miðvallarleikmaður, hefur leikið upp alla yngri flokka í HK í Kópavogi.

Síðastliðin vetur reyndi hún fyrir sér í fótboltaskóla í Noregi þar sem hún varð fyrir meiðslum og náði hún lítið að beita sér í sumar sökum meiðslanna en spilaði þó 9 leiki með 2.flokki HK/Víkings og skoraði í þeim 2 mörk.

Hún hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands og á að baki einn leik með U17 ára landsliðinu.

Þá skrifaði Tara Björk Gunnarsdóttir, ung stúlka sem fædd er árið 1995 og hefur leikið upp yngri flokka hjá KA á Akureyri, einnig undir samning til tveggja ára fyrir stuttu. Tara Björk er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leikið á miðju og í sókn og hefur hún staðið sig gríðarlega vel síðan hún hóf æfingar hjá Haukum í byrjun nóvember síðast liðnum.

Heimild: Haukar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.