Fotbolti.net
25.01.07 - 13:09
Magnús Már Einarsson

Dragana og Ivana í Þór/KA (Staðfest)

Dragana og Ivana í Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Þór/KA hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir Landsbankadeild kvenna en Dragana Stojanovic og Ivana Ivanovic hafa ákveðið að leika með liðinu næsta sumar eftir að hafa leikið með FH síðastliðið sumar.
Dragan Stojanovic þjálfari Þórs/KA staðfesti þetta við Fótbolti.net í dag en hann er einnig að leita að erlendum markverði til að fylla skarð Petru Sigurðardóttur sem fór í Breiðablik á dögunum.

Dragana sem er 24 ára varnarmaður skoraði eitt mark í þrettán leikjum í Landsbakadeildinni síðastliðið sumar en Ivana sem er 27 ára miðjumaður skoraði tvö mörk í jafnmörgum leikjum. Þær eiga báðir um 40 landsleiki að baki fyrir Serbíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.